School of Natural Medicine IcelandIceland

HEILSUMEISTARASKÓLINN HMS,  (School of Natural Medicine á Íslandi, SNMI), býður uppá einstaklega djúpt nám í almennum náttúrulækningum, heilsumeistaranám, sem færir nemendum fjölbreytta færni til að verða sannir meistarar í náttúrulegri heilsu og heilun.

Heilsumeistaranám veitir þekkingu í heilsuvernd sem er án inngripa svo sem skurðaðgerða og lyfja og sem styðst við faglega leiðsögn, kennslu og náttúrulegar aðferðir og efni við uppbyggingu heilsunnar.

Boðið er uppá 3ja ára nám, innritun fyrir haust 2008 hefst í febrúar og síðasti innritunardagur er 15. júní 2008. Kynnið ykkur innritunarferil /enrollment process, sjá upplýsingablað undir application link

Heilsumeistaranám er heiti námsins en erlend starfsheiti eftir sambærilegt nám er Naturopath eða Heilpraktiker. Kennslan fer fram á þremur árum með helstu kennslulotum vor og haust ásamt fjarnámi og heimanámi.

Allir nemar byrja námið á því vinna með eigin heilsu (Self Healing module) undir leiðsögn Dr. Faridu Sharan og kennara námsins, þessi sjálfsvinna heldur áfram í gegnum allt námsferlið.

HMS er einstakur skóli sem styðst við hraðnámstækni, lausnaleitanám (problem based learning) og fjölgreindarþætti manneskjunnar í kennslu námsefnis auk þess sem nemandi tileinkar sér þekkinguna í gegnum það að vinna með eigin heilsu.
 
Innihald námsins byggist á eftirfarandi grunnþáttum:

  1. Master Iridology - Lithimnufræði; fjarnám, verkefni og kennsla
  2. Master Herbal Medicine - Grasalækningar;  fjarnám, verkefni og kennsla
  3. Master Naturopathy - hagnýtar náttúrulækningar; fjarnám, verkefni og kennsla
  4. Naturopathic Immersion - Samþætting allra þátta;  fagleg og hagnýt kennsla vor- og haustlotur
  5. Divinity Touch Reflexology - Djúp-tengsla svæðanudd
  6. Divinity Touch Essential Oils Therapy - Djúp-tengsla kjarnaolíunám  
  7. Flower Essence Practitioner - Blómadropar; Meðferð og notkun íslenskra náttúrudropa.
  8. Living Food Lifestyle – Lifandi fæði
  9. Purification, Regeneration and Transformation Retreat - upplifun og endurnýjun.
  10.  Lokaverkefni, skýrslur.

Í HMS er litið er á manneskjuna sem þríþætta heild; líkama, anda og sál og  bæði líkamleg og andleg heilsa skipta máli og að nemendur séu öðrum til eftirbreytni.

Með hugtakið innri vistfræði (inner ecology) að leiðarljósi og í jafnvægi við hina ytri vistfræði náttúrunnar (outer ecology), verður nemandinn fær um að leiða meðferð sem sem byggir á þremur grunnþáttum; hreinsun, uppbyggingu og umbreytingu (purification, regeneration, transformation) sem eru lykilhugtök í námi og kennslu SNMÍ. Áhersla er á lífsstíl og fæði og í náminu er m.a. námskeið í lifandi fæði og hreinsunar- og endurnýjunarnámskeið fyrir nemendur.

Markmið námsins er þríþætt:

*að veita alhliða nám í nátturulegum og óhefðbundnum lækningum

*í gegnum einstakt námsumhverfi öðlast nemandinn þekkingu, innri visku og styrk sem nýtist í honum fyrir sig og aðra

*sérhver nemandi er hvattur og studdur við eigin sjálfsheilunar svo hann megi vera góð fyrirmynd og lifandi fordæmi annarra.

Við mælum eindregið með því að áhugasamir kynni sér vefsíður skólans.
Vefsíða móðurskólans er á www.purehealth.com. Sjá einnig upplýsingar á íslensku inná www.healthmastericeland.com og bloggsíðunni www.healthmastericeland.typepad.com

Kennsla mun fara fram um helgar og síðdegis og gert er ráð fyrir að nemendur geti stundað vinnu með náminu.  Helstu námslotur eru í september og maí en einnig nokkrar helgar dreifðar yfir árið.

Inntökuskilyrði
Formleg umsókn
Enska úr menntaskóla
Eigin heilsuvernd/heilsumeðferð í amk. 3 mánuði

Skilyrði til að útskrifast er að hafa setið kennslu og námskeið, að hafa lokið verkefnum og sjúkraskýrslum. Að auki þarf eftirfarandi menntaskólafög;
Líffæra- og lífeðlisfræði 1 og 2 (best að taka sem fyrst)
Sjúkdómafræði 1 og 2
Siðfræði heilbrigðisstétta

Námið er alþjóðlega viðurkennt nám og veitir ND, Naturopath Diploma.

Nám Heilsumeistara er í samræmi við þau skilyrði sem þarf til að verða Skráðir græðarar á Íslandi í gegnum aðildarfélag, samkvæmt lögum um Bandalag íslenskra græðara.

Heilsumeistaraskólinn BLOG Newsletter: www.independentlyhealthy.typepad.com
Heilsumeistaraskólinn BLOG Newsletter: www.healthmastericeland.typepad.com

Web Design by Solstice Web